3.3.2011 | 18:45
Borðaröðun SSON um helgina ! -update 2
ATH Nú ætti að vera hægt að ganga út frá því að kominn sé nokkuð pottþétt borðaröðun, hið eina sem gæti breytt þessu væru þreyta, skyndileg veikindi eða náttúruhamfarir, því verður að teljast nokkuð líklegt, í ljósi sögunnar, að kalla þurfi inn varamenn í umferðir 6 og 7 (skrifað kl 22:20).
Hér að neðan má sjá hvernig félagsmenn raðast í sveitir og á borð á Íslandsmót skákfélaga um helgina. Ef menn hafa einhverjar athugasemdir við þetta eru þeir hinir sömu beðnir um að hafa tafarlaust samband við liðsstjóra.
ATH: Tekið skal fram að enn getur þessi borðaröð tekið breytingum t.a.m. var einn liðsmaður að hafa samband rétt í þessu (Kl 19.15) með óskir um breytingu, annar rétt þar áður. Liðsstjóri setur inn nýjar upplýsingar hér um leið og þær liggja fyrir. Endanleg uppstilling ætti að liggja fyrir síðar í kvöld.
5.umferð 6.umferð 7.umferð
1. Páll Leó (hv) | Páll Leó (sv) | Páll Leó (hv) | |
2. Gunnar | Gunnar | Gunnar | |
3. Magnús Gunn | Magnús Gunn | Magnús Gunn | |
4. Guðbjörn | Úlfhéðinn | Guðbjörn | |
5. Adolf | Ingvar Örn | Úlfhéðinn | |
6. Úlfhéðinn | Grantas | Ingvar Örn | |
1.Ingimundur (hv) | Erlingur Jens | Grantas | |
2.Ingvar Örn | Magnús Matt | Erlingur Jens | |
3.Erlingur Jens | Magnús Garð | Magnús Matt | |
4.Magnús Matt | Erlingur Atli | Magnús Garð | |
5.Árni G | Stefán B | Stefán B | |
6.Magnús Garð | Þorvaldur | Þorvaldur | |
varamenn | varamenn | varamenn | |
Grantas | Árni | Erlingur Atli | |
Erlingur Atli | Geir Waage | Geir Waage | |
einhver þýskur stórmeistari | rússneskt undrabarn | indversk skákkona |
Upplýsingar um mótið: http://skaksamband.is/?c=webpage&id=439
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.3.2011 | 14:43
Hraðskákmót og helgin framundan
Í gærkvöldi var tekið hraðskákmót eftir að menn höfðu borið saman bækur sínar varðandi komandi átök á Íslandsmót skákfélaga um helgina.
Úrslit:
1. Úlfhéðinn 7,5
2. Erlingur J 7
3. Ingimundur 6
4. Magnús M 5,5
5. Grantas 5
6-8 Ingvar 3
6-8 Gunnbjörn 3
6-8 Þorvaldur 3
9-10 Magnús G 2,5
9-10 Erlingur Atli 2,5
Liðsstjóri SSON á Íslandsmóti skákfélaga situr þessa stundina við að raða félagsmönnum í sveitir og á borð fyrir helgina, ljóst að vegna fjölda félagsmanna sem áhuga hafa á að tefla að ekki munu allir geta telft allar skákirnar um helgina. Liðsstjóri setur inn borðaröðun hér á síðuna seinna í dag.
1.3.2011 | 13:51
Línur lagðar og teflt...
Miðvikudagskvöldið 2.feb kl 19:30 hittast félagar í SSON í Selinu.
Farið verður yfir skipulag, borðaröð, andstæðinga og áætlanir okkar í Íslandsmótinu sem fram fer um helgina.
Að því loknu verður að sjálfsögðu tekið skákmót.
Mikilvægt að allir mæti.
28.2.2011 | 14:12
Íslandsmót skákfélaga um helgina !
Um helgina verða tefldar síðustu 3 umferðir Íslandsmóts skákfélaga, telft verður í Rimaskóla í Reykjavík.
Umferðir fara fram sem hér segir:
5. Föstudagur kl 20:00
6. Laugardagur kl 11:00
7. Laugardagur kl 17:00
Liðsstjóri SSON biður alla þá félagsmenn sem hafa ekki enn látið vita hvort þeir hyggist tefla um helgina að hafa samband við hann. Sömuleiðis að láta hann vita hver margar skákir þeir geta teflt.
28.2.2011 | 13:43
Athyglisverður liðsauki til SSON
Stefán Bjarnarson (46) hefur gengið til liðs við SSON. Stefán hefur undanfarin ár teflt við góðan orðstír með Víkingaklúbbnum, þar áður var hann í Taflfélagi Vestmannaeyja en sín fyrstu skákspor tók hann í Taflfélagi Kópavogs þar sem faðir hans var lengi formaður.
Stefán var á sínum yngri árum einn allra öflugasti skákmaður sinnar kynslóðar, en tók knattspyrnuna fram yfir skákferilinn og lék með Knattspyrnufélaginu Víkingi í fjöldamörg ár.
Þess má til gamans geta að hjá Taflfélagi Kópavogs tefldi núverandi formaður SSON sína fyrstu kappskák, að áeggjan Stefáns og við Stefán, Stefán beið reyndar lægri hlut í þeirri skák en hefur síðan alltaf unnið formanninn, sem og margan sterkari skákmanninn.
Stefán er einn af öflugustu skákmönnum landsins þótt yngri kynslóðin þekki hann lítið og iðulega hefur hann verið notaður sem leynivopn hjá þeim félögum sem teflt hafa honum fram.
SSON býður Stefán velkominn til félagsins.
22.2.2011 | 13:25
Atskák á miðvikudegi
17.2.2011 | 01:44
Skákfélag Vinjar vinnur og SSON líka !
Það voru 8 Selfyssingar og nærsveitungar sem lögðu á heiðina skömmu eftir kvöldmjaltir, fullir eftirvæntingar, klyfjaðir vistum og útilegubúnaði til höfuðborgarferðar, sá níundi kom til leiks í Reykjavík.
Fjórsetið var í tveimur bílum til Reykjavíkur og var tekinn sú strategíska ákvörðun að hafa Erlingana saman í bíl ásamt Þorvaldi og Ingvari, á meðan formaðurinn hýsti Úlfhéðinn og kippti Magnúsi Garðars og Kasparovsbananum Grantas með í Hveragerði. Grantas tók ekki í mál að missa af þessari viðureign þrátt fyrir að hafa nýverið gengist undir lungna og hjartaaðgerð, skákáhugi, já segðu nafni !
Tilhlökkun, spenna, ást og hræðsla í loftinu þegar Flóamenn gengu í salinn í aðalbækistöðvum Skákfélagsins Vinjar að Hverfisgötu.
Teflt var á 9 borðum í kvöld, 7 mínútna skákir, gestgjafar sátu meðan gestir færðust til vinstri.
Ástarguðinn sjálfur Robert Lagermann kynnti sjálfan sig til leiks sem skákstjóri og yfirdómari og lék fyrsta leik í viðureign Hrafns og Magnúsar - ljóst að keppnin var í góðum höndum.
Arnar Valgeirsson skákgúrú þeirra höfuðborgarbúa bauð gesti velkomna og lét um leið hlý orð falla í þeirra garð.
Vinjarmenn miklir höfðingjar heim að sækja, nema þegar kemur að taflmennsku, þá er ekkert gefið og teflt í fulla hnefa.
Fyrstu umferð vann Vin, 5-4, Selfyssingar að virtist enn að jafna sig eftir ferðalagið langa eða voru þeir ef til vill enn að treysta á æðri handleiðslu eins og í síðustu umferð fyrri viðureignar þegar þeir unnu 8-0 og þar með viðureignina 36-28, já stórt er spurt í Flóa.
Þá næstu vann Vin einnig, staðan 11-7.
Þriðju umferð vann Vin 5-4.
Loksins í fjórðu umferð náðu SSON menn að spýta í lófa og höfðu góðan 5,5-3,5 sigur, en Vin vann þá fimmtu og hafði yfir í hléi 24,5-20,5.
Var þá komið að veitingum, sem ekki voru við nögl skornar, og gerðu menn þeim góð skil, fullgóð kannski sumir.
Arnar kvað sér hljóðs og þakkaði gestum komu og lét ekki þar við sitja heldur færði Skákfélagi Selfoss einar 20 skákbækur að gjöf og einn Morgan Kane.
Hrafn Jökulsson, skákpabbi Íslands, sem teflir þessi dægrin fyrir Vin, reis einnig úr sæti og færði Skákfélagi Vinjar forláta möppu með ljósmyndum af starfi félagsins undangengin ár.
Hin hógværi formaður SSON þakkaði góðar gjafir og færði gestgjöfum geisladisk með merkum upptökum skáksögunnar að gjöf.
Einstaka menn nýttu hlé einnig til reykinga meðan aðrir báru saman sínar margfrægu bækur. Skákstjórinn röggsami hvarf af vettvangi, hafði líklega öðrum hnöppum að hneppa. HJ, AV og MM tóku við.
Eftir kaffi komu Vinverjar sterkir til leiks og höfðu öruggan sigur í 6.umferð 5,5-3,5, Selfyssingar klóruðu í bakkann og höfðu 5-4 sigur í þeirri sjöundu, en var sparkað jafnharðan í strauminn og töpuðu þeirri áttundu og næstsíðustu 6-3. Ljóst að annað undur eða kraftaverk þyrfti til að Selfyssingar ynnu viðureign kvöldsins enda staðan fyrir síðustu umferð 40-32.
Kraftaverk átti sér ekki stað né flugu andar framliðinna heimsmeistara yfir salinn í þetta sinn, því þótt Selfyssingar hefðu sigur í síðustu umferð, dugði það þeim ekki til og Vinverjar höfðu öruggan og mjög svo sanngjarnan sigur í viðureigninni 44-37.
Bestum árangri Skákfélags Vinjar náðu þeir Hrannar Jónsson og Hrafn Jökulsson með 7,5 vinninga og Björn Sölvi var síðan með 6 vinninga.
Bestum árangri gestanna náðu þeir Úlfhéðinn Sigurmundsson og Magnús Matthíasson með 7,5 vinninga, Ingimundur, bróðir Úlfhéðins, var síðan með 5,5 vinninga.
Nú lokaniðurstaðan í þessari sögulegu viðureign, eftir að leikið hefur verið heima og heiman og tefldar svo mikið sem 155 skákir er sú að Skákfélag Selfoss og nágrennis hefur sigur með 73 vinningum gegn 72 vinningum Skákfélags Vinjar.
Myndaalbúm: sjá efst á síðu.
GENS UNA SUMUS...............meine Freunde !
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 01:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.2.2011 | 00:12
Skákfélag Vinjar vs SSON
Seinni viðureign Skákfélagsins Vinjar og SSON í baráttunni um gyllta tvípeðið fer fram miðvikudaginn 16.feb kl 19:30 í höfuðstöðvum Vinjar að Hverfisgötu 47 í Reykjavík.
Fyrri viðureignin fór fram á Selfossi í janúarmánuði, þar höfðu Selfyssingar betur 36-28, eftir að hafa unnið kyngimagnaðan sigur í síðustu umferð 8-0.
Heimildir herma að Vinjarmenn komi tví- ef ekki þríefldir til leiks að þessu sinni, enda mun þeim enn svíða tapið í mjólkurbænum.
Eftirtaldir SSON liðar hafa staðfest þátttöku sína:
1. Ingvar Örn
2. Erlingur J
3. Erlingur Atli
4. Magnús M
5. Ingimundur
6 .Þorvaldur
7. Magnús G
8. Úlfhéðinn
Þeir félagsmenn sem ætla sér að vera með eru beðnir um að hafa samband við MM. Reiknað er með að teflt verði á 8-10 borðum.
Spil og leikir | Breytt 16.2.2011 kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2011 | 23:24
Ingvar Örn sigurvegari..
á þriðja móti atskákraðar SSON, hann hlaut 5,5 vinninga í 7 skákum, jafnir í 2.-3. sæti voru Ingimundur og Magnús Garðarsson.
Lokastaða:
1. Ingvar Örn 5,5
2. Ingimundur 5
3. Magnús Garðars 5
4. Grantas 4
5. Erlingur J 3,5
6. Magnús M 3
7. Þorvaldur 2
8. Erlingur Atli 0
Staðan í mótaröð:
Ingvar Örn Birgisson | 33 stig | (3 mót) | ||
Grantas Grigoranas | 19 stig | (3 mót) | ||
Ingimundur Sigurmundsson | 19 stig | (3 mót) | ||
Magnús Gunnarsson | 12 stig | (1 mót) | ||
Magnús Matthíasson | 11 stig | (3 mót) | ||
Magnús Garðarsson | 10 stig | (2 mót) | ||
Erlingur Jensson | 8 stig | (2 mót) | ||
Erlingur Atli | 6 stig | (3 mót) | ||
Þorvaldur Siggason | 5 stig | (3 mót) | ||
Úlfhéðinn Sigurmundsson | 4 stig | (1 mót) | ||
Spil og leikir | Breytt 10.2.2011 kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2011 | 13:00
Atskákmót...
...miðvikudaginn 9.feb kl 19:30, þriðja mót í atskákröð félagsins.
Tefldar verða 4-5 umferðir með 15-20 mínútna umhugsunartíma, eftir fjölda keppenda.
Félagsmenn eru síðan beðnir um að taka miðvikudagskvöldið 16.feb frá vegna þess að þá munum við endurgjalda heimsókn Skákfélags Vinjar og mæta þeim í Reykjavík kl 19:30.