Íslandsmót skákfélaga hefst í kvöld !

Allt til reiðu hjá SSON sem sendir tvær sveitir til leiks, eina í 2. deild og eina í þeirri 4.

Taflmennska hefst kl 20 í kvöld, síðan er umferð kl 11 í fyrramálið og kl 17.  Síðasta umferð helgarinnar hefst síðan kl 11 á sunnudagsmorgun.

Teflt er í Rimaskóla í Reykjavík.

A-sveitin teflir við TR-b í kvöld, mætir síðan Mátum í fyrramálið, þar á eftir SR og síðasta viðureign helgarinnar er gegn TB-b.

Dregið verður í fjórðu deild seinni part dags eða skömmu fyrir 1.umferð þar eru 26 lið skráð til leiks sem er fjölgun sveita á Íslandsmóti frá því í fyrra.

Í fjórðu deild gilda Match Points sem þýðir að vinningafjöldi sveitar skiptir ekki höfuðmáli heldur að vinna viðureignina, sigur í viðureign gefur 2 stig, jafntefli gefur eitt stig, fjöldi vinninga skiptir síðan máli ef sveitir eru jafnar.

Sjáumst í baráttuskapi í kvöld!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband