3.5.2011 | 20:17
Kjördæmismótið....
....í skólaskák fyrir Suðurland var haldið í Selinu félagsheimili SSON í dag. Teflt var í tveimur flokkum venju samkvæmt, 1.-7. bekk og 8.-10. bekk.
Flúðaskóli fór mikinn og átti flesta keppendur og allflesta verðlaunahafa. Athygli vakti að Grunnskóli Vestmannaeyja sendi enga keppendur í ár, sömuleiðis sendi Hvolsskóli ekki keppendur til leiks þótt hann hafi verið búinn að skrá þá.
Þó að mótshaldarar hafi saknað keppenda frá þessum tveimur höfuðvígjum barnaskákarinnar á Suðurlandi var mótið skemmtilegt og hart var barist.
Emil Sigurðarson vann allar skákir sínar í eldri flokki af þó nokkru öryggi og er verðugur fulltrúi okkar Sunnlendinga á Landsmóti.
Filip Jan tefldi einnig vel og vann allar skákir sínar utan eina þar sem hann gerði jafntefli við skólabróður sinn Rúnar Guðjónsson. Filip og Halldór munu án efa standa sig vel á Landsmóti enda báðir miklir keppnismenn og Hrunamenn að auki.
það fór svo að fulltrúar Flúðaskóla og Grunnskóla Bláskógabyggðar skiptu mér sér verðlaunum, aðrir skólar komust ekki á verðlaunapall í þetta skiptið.
Sigurvegarar:
Yngri:
1. Filip Jan Jozefik
2. Halldór Fjalar Helgason
3. Einar Trausti Svansson
Eldri:
1. Emil Sigurðarson
2. Þórmundur Smári Hilmarsson
3. Alex Þór Flosason
Það verða því þeir Filip, Halldór og Emil sem verða fulltrúar Suðurlands á Landsmótinu sem fram fer á Akureyri aðra helgi.
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Athugasemdir
Sendu Vallarskóli og Sunnulækjaskóli ekkert lið?
Ingvar Örn Birgisson (IP-tala skráð) 4.5.2011 kl. 22:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.