Íslandsmót skákfélaga

Nú styttist í Íslandsmót skákfélaga en fyrri hluti þess fer fram aðra helgina í október.

Formaður félagsins biður þá sem áhuga hafa á að tefla fyrir hönd félagsins að hafa samband.

Liðsstjóri hefur haft þá reglu á undanförnum árum að raða í sveitir eftir skákstigum, á þeirri reglu eru ekki gerðar undantekningar nema brýna nauðsyn beri.

Liðstjóri er nú að taka saman árangur allra þeirra sem teflt hafa fyrir félagið á undanförnum þremur árum og mun niðurstaða þeirrar athugunar mögulega hafa áhrif á röð félagsmanna þegar raðað verður í sveitir.

SSON mun örugglega senda tvær sveitir til leiks, mögulega þrjár ef vel tekst til með mönnun.

Stjórn SSON hefur átt í viðræðum við forráðamenn sveitarfélagsins varðandi aðkomu þess að ýmsu er snertir félagið, eitt af því er að halda seinni hluta Íslandsmótsins hér í höfuðstað Suðurlands, niðurstaða ætti að liggja fyrir fljótlega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband