6.3.2012 | 20:39
Reykjavíkurmótið !
Fjórir félagsmenn taka nú þátt í Reykjavíkurmótinu í skák sem fram fer í Hörpunni. Páll Leó Jónsson (2043), Ingvar Örn Birgisson (1767), Ingibjörg Edda Birgisdóttir (1564) og Erlingur Atli Pálmarsson (1405).
Keppendur á mótinu eru 197 og þar á meðal sjöundi stigahæsti skákmaður heims hinn kornungi Ítali Fabiano Caruana (2767) og heimsmeistari kvenna Hou Yifan (2639)
Félagar okkar fá allir mjög erfiða andstæðinga í fyrstu umferð en Páll Leó þó þann sýnu erfiðasta eða Yuri Kuzubov en hann er með 2615 skákstig.
Vegna mótsins fellur niður skákæfing miðvikudaginn 7.mars.
Allar upplýsingar um mótið má nálgast hér að neðan:
Heimasíða mótsins: http://skaksamband.is/?c=webpage&id=490/
Upplýsingar um paranir og úrslit: http://chess-results.com/tnr54645.aspx?lan=1
Upplýsingasíða um skák á Íslandi: http://www.skak.blog.is/blog/skak/
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:42 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.