Suðurlandsmeistari 2012 !

Það voru 22 keppendur sem tóku holla og mannbætandi skákiðkun fram yfir sólarsleikjur og aðra óáran í dag.  Flestir keppendur frá Skákfélagi Selfoss og nágrennis og Eyjapeyjar síðan venju samkvæmt með vaskan hóp valinkunnra skákjöfra.  Borgarbörnin áttu einnig sína fulltrúa sem og einstaka Sunnlendingur héðan og þaðan.  Suðurnesin áttu sinn fulltrúa í Sigurði H.Jónssyni sem alltaf hefur tekið þátt frá því að mótið var endurvakið fyrir fjórum árum.

Fyrirfram mátti búast við því að Þeir feðgar Sverrir og Nökkvi ásamt Páli Leó myndu berjast um sigurinn, einnig var ljóst að á eftir þeim kæmi síðan nokkuð mikill fjöldi skákmanna sem gæti vel blandað sér í toppbaráttuna, sú varð einnig niðurstaðan

Fyrir mót spáðu spakir menn því að mótið myndi vinnast á 5, 5 vinningum, sú varð einnig niðurstaðan.

Í fyrstu umferð var meðal annars tvöfaldur öfugur feðgaslagur þar sem feðgarnir Sverrir og Nökkvi mættu þeim feðgum Kjartani og Degi, sá yngri á móti þeim eldri, Eyjapeyjarnir höfðu báðir sigur.  Á sama tíma gerði Páll Leó jafntefli við Grantas og Laugvetningurinn Emil vann góðan sigur á sjómanninum síkáta Þórarni Inga.

Í næstu umferð unnu þeir eyjafeðgar sínar skákir og gerðu síðan jafntefli í innbyrðirs viðureign í 3.umferð.  Emil og Páll Leó unnu einnig örugglega í 2. og 3.umferð þar sem Emil vann góðan sigur á Ingvari Erni sem reyndar átti eftir að láta að sér kveða síðar í mótinu, þetta þýddi að Emil var orðinn einn efstur að loknum þremur umferðum.

Fjórða umferðin var spennandi eins og allar sem þar á eftir komu, Sverri og Emil gerðu jafntefli á meðan Páll Leó vann Nökkva, Jón Trausi stimplaði sig inn i baráttu efstu mann með góðum sigri á Erlingi Jenssyni, hið sama gerði Kjartan Másson með sigri á Úlfhéðni.  Á fimmta borði vann Grantas síðan atskákmeistara SSON Ingimund og Ingvar vann hraðskákmeistara sama félags, Magnús Matt.

Suðurlandsmótið 2012

 

 

 

 

 

 

Staðan að loknum 4 umferðum:

NameRtgPts
Sigurðarson Emil1821
Jónsson Páll Leó2043
Unnarsson Sverrir19073
Jón Trausti Harðarson17733
Kjartan  Másson17153
Sverrisson Nökkvi1968
Grantas Grigoranas1729
Ingvar Örn Birgisson1767
Sigurður H. Jónsson1746
Úlfhéðinn Sigurmundsson17702
Erlingur Jensson17502
Erlingur Atli Pálmarsson14052
Dagur Kjartansson16522
Ingimundur Sigurmundsson1791
Ingibjörg Edda Birgisdóttir1564
Magnús Matthíasson1616
Birkir Karl Sigurðsson1810
Gauti Páll  Jónsson14101
Þórainn Ingi Ólafsson16211
Michael Starosta01
Jakob Alexander Petersen11851
Arnar  Erlingsson00

Í 5.umferð vann Páll Leó Emil og Sverrir vann Jón Trausta á meðan Ingvar hafði góðan sigur á Kjartani og Nökkvi vann Kasparovbanann Grantas.

Sjötta umferðin og sú næstsíðasta, óhætt að segja að taugar hafi verið þandar til hins ítrasta, á efstu þremur borðum unnust sigrar með svörtu mönnunum, Sverrir, Nökkvi og Ingvar Örn unnu Pál Leó, Emil og Sigurð.  Á fjórða og fimmta borði gerðu borgarfeðgar úti um vonir Jóns Trausta og Erlings Atla. Línur farnar að skýrast fyrir síðustu umferð.

Staðan fyrir síðustu umferð:

    
RankNameRtgPts
1Unnarsson Sverrir19075
2Sverrisson Nökkvi1968
3Jónsson Páll Leó2043
4Ingvar Örn Birgisson1767
5Kjartan  Másson17154
6Dagur Kjartansson16524
7Sigurðarson Emil1821
8Sigurður H. Jónsson1746
9Ingimundur Sigurmundsson1791
10Jón Trausti Harðarson17733
11Ingibjörg Edda Birgisdóttir15643
12Erlingur Atli Pálmarsson14053
13Michael Starosta03
14Grantas Grigoranas1729
15Birkir Karl Sigurðsson1810
16Magnús Matthíasson1616
17Erlingur Jensson17502
18Úlfhéðinn Sigurmundsson17702
19Þórainn Ingi Ólafsson16212
20Jakob Alexander Petersen11852
21Gauti Páll  Jónsson1410
22Arnar  Erlingsson00
    

Í síðustu umferð mættust Sverrir og Ingvar Örn þar sem Ingvar tefldi gríðarlega vel og uppskar öruggan sigur, Páll Leó vann Kjartan og Nökkvi vann Dag, á fjórða borði gerðu Ingimundur og Emil jafntefli.

Því var staðan sú að þrír voru efstir og jafnir með 5,5 vinninga, Nökkvi, Páll Leó og Ingvar Örn.  Hraðskák átti að skera úr um Suðurlandsmeistaratitilinn !

Dregið um töfluröð, tefld skildi tvöföld umferð um titilinn, til að gera langa sögu stutta var það Ingvar Örn sem tefldi hraðskákina af feiknaröryggi, hann vann fyrstu 3 skákirnar, þar með gaf Páll Leó sínar tvær síðustu þannig að Ingvar fékk 4 vinninga, Nökkvi 2 og Páll Leó engan.

Ingvar Örn svo sannarlega verðugur Suðurlandsmeistari, tefldi af ótrúlegri yfirvegun, stáltaugar í bland við mikla skákkunnáttu, banvæn blanda, til hamingju Ingvar Örn !

 

Ingar Örn Suðurlandsmeistari 2012SUC50079

Lokastaðan:

     
RankNameRtgClubPts
1Sverrisson Nökkvi1968TV
2Jónsson Páll Leó2043SSON
3Ingvar Örn Birgisson1767SSON
4Unnarsson Sverrir1907TV5
5Sigurðarson Emil1821SFÍ4
6Kjartan  Másson1715SAUST4
7Jón Trausti Harðarson1773Fjölnir4
8Dagur Kjartansson1652SFÍ4
9Ingimundur Sigurmundsson1791SSON4
10Ingibjörg Edda Birgisdóttir1564SSON4
11Erlingur Atli Pálmarsson1405SSON4
12Grantas Grigoranas1729SSON
13Sigurður H. Jónsson1746SR
14Erlingur Jensson1750SSON3
15Úlfhéðinn Sigurmundsson1770SSON3
16Michael Starosta0TV3
17Birkir Karl Sigurðsson1810SFÍ
18Magnús Matthíasson1616SSON
19Þórainn Ingi Ólafsson1621TV
20Gauti Páll  Jónsson1410TR2
21Jakob Alexander Petersen1185TR2
22Arnar  Erlingsson0SSON0

Ljósmyndir frá mótinu í ´myndaalbúm´

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband