Íslandsmót íþróttafélaga í skák

fór fram í dag að viðstöddu fjölmenni í höfuðstöðvum Séra Friðriks að Hlíðarenda í Reykjavík.

Fjöldi félaga skráður til leiks og nokkur með stórmeistara innan sinnan raða.

Fjórir félagsmenn SSON tefldu fyrir hönd UMFS með ágætum árangri, þeim besta frá upphafi!

Tefldar voru 5 mínútna skákir, fjórir í sveit, það voru þeir Magnús Matthíasson, Ingvar Örn Birgisson, Árni Guðbjörnsson og Grantas Grigoranas sem tefldu fyrir UMFS, í þessari borðaröð.íslandsmót íþróttafélaga í skák 2012 

 

 

 

 

 

Auðvitað lá fyrir að róðurinn yrði þungur enda flestir af bestu skákmönnum þjóðarinnar á staðnum að freista þess að hafa sigur í mótinu og ekki voru verðlaun skorin við nögl, utanlandsferðir fyrir alla keppendur sigurliðs.

Það fór svo að við náðum þó einum 6 vinningum, þar af fjórum í siðustu umferð sem var hrein úrslitaviðuregin um 9.sætið en þar unnum við Leikni frá Reykjavík.

Sigurvegarar mótsins urðu síðan Fram frá Reykjavík, en fyrir þá tefldu stórmeistararnir Jóhann Hjartarson og Helgi Áss Grétarsson, auk Braga Þorfinnssonar og Elvars Guðmundssonar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband