3.10.2012 | 23:42
Íslandsmót skákfélaga !
Tíu félagar mættu í kvöld í Selið til að tefla, spekúlera og ræða lífsins gagn og helstu nauðsynjar. Tekið var hraðskákmót sem Páll Leó vann, Björgvin varð annar og Grantas þriðji.
Fyrri hluti Íslandsmótsins fer fram í Rimaskóla um helgina, SSON sendir tvær sveitir til leiks, a-sveit félagsins teflir í 3.deild en b-sveitin í þeirri 4.
Liðsstjóri hefur undanfarna daga verið í sambandi við félagsmenn varðandi liðsskipan. Undirtektir hafa verið góðar sem þýðir að liðsstjóri þarf að vanda valið í lið sérstaklega vel. Liðsstjóri reynir alltaf að velja sterkustu skákmenn félagsins í sveitir þess og er á stundum vandi á höndum.
Sveitaskipan verður birt hér á heimasíðunni annað kvöld eða á föstudag.
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.