26.11.2012 | 15:38
Sveitakeppni HSK !
Sveitakeppni HSK fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld i Selinu og hefst taflmennska kl 19:30. Öllum ungmennafélögum á yfirráðasvæði HSK er heimilt að senda sveit til leiks. Hver sveit skal skipuð 4 einstaklingum heilum á geði og með óflekkað mannorð.
Í fyrra tóku 6 sveitir þátt og eftir hörkukeppni voru það þeir félagar í ungmennafélaginu Baldri sem höfðu sigur.
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.